Íslenska silfrið er fésbókarsíða þar sem hægt er að kaupa og/eða selja gamla silfurmuni milliliðalaust. Síðan er opin öllum fagurkerum.
Viðhengi úr silfri og gulli í úrvali.
Hringar úr silfri, gulli eða gulli og silfri fyrir stýrimenn og vélstjóra.
Íslandsskeiðin sem Reynir Guðlaugsson hannaði er kjörgripur. Skeiðin er handsmíðuð, á blaðinu stendur -Ísland- í höfðaletri. Höfðaletur finnst aðeins á Íslandi og hefur skeiðin verið vinsæl gjöf þegar erlend fyrirmenni sækja okkur heim.